Jónsskjöl
Persónuvernd og mælingar
Síðast uppfært 9. ágúst 2026
Ábyrgðaraðili
Mynstra ráðgjöf ehf. er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga vegna vefmælinga á jonsskjol.is.
Netfang vegna persónuverndarerinda er [email protected].
Hvað er mælt
Google Analytics er aðeins virkjað eftir að gestur hefur samþykkt vefmælingar. Þá geta eftirfarandi upplýsingar verið unnar:
- síður sem eru skoðaðar og hvaðan gestur kom
- almennar upplýsingar um vafra, tæki og grófa staðsetningu
- hvort smellt er á að spila leikinn
- hvort leikur er hafinn, haldið áfram, byrjað upp á nýtt eða fyrsti þáttur kláraður
Hvorki nöfn, netföng né frjáls texti úr leiknum eru send til Google Analytics. Google Signals og sérsniðnar auglýsingamælingar eru óvirkar í uppsetningu vefsins.
Tilgangur og heimild
Tilgangurinn er að skilja hvort gestir finna efni vefsins, hefja leikinn og ljúka fyrsta þætti. Vinnslan byggist á samþykki gestsins. Samþykki má afturkalla hvenær sem er með hnappinum Mælingar neðst á skjánum.
Þjónustuaðili og geymsla
Google Ireland Limited vinnur mælingargögn fyrir hönd Mynstra ráðgjafar ehf. Google Analytics notar vefkökur og slembið auðkenni til að greina heimsóknir. Samþykkisval gestsins er geymt í vafranum.
Google segir að IP-tölur notenda á EES-svæðinu séu notaðar tímabundið til að leiða út grófa staðsetningu og síðan fargað áður en gögn eru skráð. Geymslutími notenda- og atburðagagna ræðst af geymslustillingum GA4-eignarinnar.
Réttindi
Gestir geta afturkallað samþykki, óskað eftir aðgangi að upplýsingum, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu eftir því sem við á. Erindum vegna vinnslunnar má beina til ábyrgðaraðilans á [email protected].
Einnig má leita til Persónuverndar.