Jón Árnason og séra Magnús Grímsson standa við torfbæ þar sem hlýtt gulllitað ljós skín úr dyrunum

Íslenskur ævintýraleikur

Fullkomlega eðlileg skýring

Jón Árnason rannsakar íslenskar þjóðsögur. Magnús Grímsson samstarfsmaður hans hefur fullkomlega eðlilega skýringu á öllu.

Nýr íslenskur ævintýraleikur

Fullkomlega eðlileg skýring er ævintýraleikur byggður á þjóðsögum Jóns Árnasonar. Hann gerist á Íslandi árið 1848, þar sem yfirnáttúran er raunveruleg.

Þú rannsakar vettvang, talar við fólk og leysir þrautir með Jóni og Magnúsi.

Heimur
Ísland árið 1848
Rannsakendur
Jón Árnason og Magnús Grímsson
Heimildir
641 þjóðsaga
Bæjarhlaðið á Hjaltastöðum með kistu fyrir framan opnar bæjardyr

Fyrsta málið / Hjaltastaðir, Múlasýsla

Lánþeginn er látinn og talar enn

Innheimtuferð Jóns endar við talandi lík. Magnús mætir til að jarða bæði manninn og kjaftasögurnar.

„Hjaltastaða-fjandinn lét sig heyra nógu skorinorðan í vetur, jafnvel þótt enginn sæi hann.“
Skrifstofa Jóns á Dómkirkjuloftinu full af bókum, bréfum og dagsbirtu

Jón Árnason og Magnús Grímsson

Jón Árnason

Jón var bókavörður Stiftsbókasafnsins á Dómkirkjuloftinu. Hann safnaði þjóðsögum með bréfaskiptum við presta, embættismenn og alþýðufólk um allt land.

Í leiknum rannsakar Jón sjálfur sögurnar sem honum berast. Hann tekur vitnisburðina alvarlega, en sér aldrei fyrirbærin með eigin augum.

Magnús Grímsson

Magnús var prestur og raunverulegur samstarfsmaður Jóns við söfnunina. Hann vildi fremur leggja stund á vísindi, þýddi eðlisfræðirit Fischers og skrifaði vísindalegar ferðalýsingar.

Jónsskjöl

Þjóðsögur Jóns Árnasonar

Leikurinn byggir á Þjóðsögum Jóns Árnasonar, sem hann safnaði og skráði. Hér má skoða 641 þjóðsögu, sem hafa verið flokkaðar eftir kúnstarinnar reglum.

Skoða þjóðsögurnar
Handteiknað Íslandskort með sjóskrímslum, örnefnum og innsigli

Hvaða skúffu opnar þú?

Veldu flokk og haltu beint inn í leitanlega safnið.

Finndu söguna sem leitar að þér

Leitaðu í titlum, frumtextum og örnefnum. Stafsetning, staðir og neðanmálsgreinar fylgja hverri sögu.

Sæki sögurnar...